Skip to main content
search
0

Vörur fyrir Pop-up markað

16.05.2024

Nú er allt komið á flug í gróðurhúsinu eins og sjá má á myndum sem við höfum tekið í vor.

Við verðum með vörur úr gróðurhúsinu á POP-up markaðinum, fimmtudaginn 06.júní. Við verðum með nokkrar plöntur í pottum svo sem tómata, papriku og chilli. Við erum líka búin að rækta upp basilíku og timjan kryddjurtir. Að lokum bjóðum við upp á nýja vöru, svokallaðar sprettur sem eru fyrstu lauf og stilkar jurta- og grænmetisplantna. Við verðum með rauðrófu-, kóríander- og sykurbaunasprettur.

Allir velkomnir og við minnum á að með því að versla á útimarkaði Áss tryggið þið að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.

Eldri fréttir frá félaginu