Markvisst 9 mánaða nám fyrir fólk með þroskahamlanir og aðrar fatlanir til undirbúnings fyrir atvinnuþátttöku.
Námið fer fram á Landspítala og hver starfsnemi fær kennslu og þjálfun í þremur mismunandi störfum.
Leitast er við að starfsnemar auki færni sína á sviðum sem nýtist á vinnumarkaði.
Námið fer fram á tímabilinu september til maí og er ólaunað.