⚠️ Mikilvæg tilkynning vegna veðurviðvörunar á morgun; 26.3.2026 ⚠️
Kæra starfsfólk og aðstandendur,
Spáð er mjög slæmu veðri á morgun 26.3.2026 og verður appelsínugul veðurviðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 07:00 til 13:00.
Vegna þessa viljum við koma eftirfarandi á framfæri:
- Mat á aðstæðum: Við biðjum ykkur að meta hvort skynsamlegt er fyrir fólk að leggja af stað til vinnu á þeim tíma sem viðvaranir eru í gildi.
- Akstursþjónusta: Búast má við truflunum á akstri og töfum á meðan veðrið er sem verst.
- Starfsemi: Húsin okkar í Ögurhvarfi og Stjörnugróf verða opin.
Við hvetjum ykkur jafnframt til að fylgjast náið með tilkynningum í fjölmiðlum, Almannavörnum og nýjustu spám á vedur.is
Förum varlega og sýnum varkárni í fyrramálið.