Hjartans þakkir öll sem komu og gáfu sér tíma að versla á vormarkaðinum síðastliðinn föstudag. Við erum öll í skýjunum eftir dásamlegan dag en með stuðningi ykkar er verið að tryggja fjölbreytt verkefni í vinnu fyrir fólk með fötlun.
Við minnum á að verslun okkar í Ögurhvarfi 6, er opin alla virka daga frá 8-15:30.
Einnig er hægt að nálgast vörur úr Gróðurhúsinu í Fjarðarkaup, Melabúðinni, Hygge í Grímsbæ og í Bjarkarási í Stjörnugróf 9.



















