Tveggja ára verkefni
Allt að vinna var tveggja ára verkefni á vegum félagsins þar sem lögð var áhersla á atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk. Verkefninu var ætlað að kynna fyrir fyrirtækjum kosti þess að ráða fatlaða starfsmenn og auka um leið samfélagsþátttöku þeirra.
Markmið verkefnisins var m.a. ð fjölga atvinnutækifærum fatlaðra einstaklinga á almennum vinnumarkaði.