Skip to main content
search
0

Úrslit í spilamóti Áss vinnustofu 2023

16.02.2024

Fyrr í mánuðinum fóru fram úrslit í hinu árlega Spilamóti Áss vinnustofu fyrir árið 2023. Mótið er alltaf jafn vinsælt og skemmtilegt.

Það voru 130 sem tók þátt í mótinu síðasta haust en úrslitunum var frestað fram yfir áramót þar sem umsjónamaður mótsins, Fúsi, var upptekinn í leikhúsinu.

Við viljum nota tækifærið og hvetja alla til að sjá sýninguna hans Fúsi, aldur og fyrri störf í Borgarleikhúsinu. Það verða sýningar að minnsta kosti fram í mars.

En aftur að spilamótinu. Í ár komust í úrslit Hlynur á svæði 3, Tómas bókari, Sísí á svæði 3 og Halla á svæði 2.

Á endanum var það hún Halla sem stóð uppi sem sigurvegari og viljum við óska henni til hamingju með sigurinn.

Eldri fréttir frá félaginu