Þjónandi leiðsögn þemadagar 2025
Dagana 26. – 28. febrúar 2025 voru hinir árvissu Þjónandi leiðsögn dagar hjá Ási styrktarfélagi. Þeir voru nýttir í að fræðast um grunnstoðir og verkfæri Þjónandi leiðsagnar, en jafnframt til að gera eitthvað skemmtilegt saman. Þema daganna að þessu sinni var öryggi sem er ein af grunnstoðunum. Það er afar mikilvægt að allir upplifi öryggi bæði á heimilum og vinnu- og virknistöðum félagsins. Að upplifa öryggi þýðir að finna innri ró og vera laus við ótta og að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að einhver eða eitthvað muni ógna þér, hræða þig eða meiða.
Við fórum líka yfir verkfærin fjögur; orð, augu, hendur og nærveru. Á Vinnu- og virknistöðum félagsins var sérstök hátíðarútgáfa af Tökum lagið virknihópnum. Við komum saman í matsalnum í Ögurhvarfi og Bjarkarási og sungum saman, bæði leiðbeinendur og starfsfólk. Það er grundvallarmál á Þjónandi leiðsögn dögum að öllum sé boðið að vera með. Við tókum meðal annars lög um vináttuna og það var vel tekið undir á báðum stöðum.
Á Þjónandi leiðsögn dögunum var kynnt nýtt verkefni sem tveir af þjónandi leiðsögn mentorum félagsins Guðný Sigurjónsdóttir og Heba Bogadóttir hafa umsjón með, en það er spilastokkurinn Gullkorn þjónandi leiðsagnar. Hann verður unninn í samstarfi við leiðbeinendur og starfsfólk á öllum starfsstöðvum félagsins. Nánari upplýsingar um Gullkornin koma síðar, en stefnt er að því að kynna útkomuna á þjónandi leiðsögn dögum 2026.
Það voru líka spilastundir inni á vinnusvæðunum þessa daga, en við notuðum spurningaspilið Spurt & svarað og hláturinn glumdi um króka og kima.
Á föstudeginum var svo hið sívinsæla Þjónandi leiðsögn bingó. Það gengur út á að fylla út reiti á bingóspjaldi sem tengjast þjónandi leiðsögn og að fá fólk sem uppfyllir ákveðin skilyrði til að kvitta. Í ár þurfti t.d. að finna einhvern sem býr í Hafnarfirði, gefa honum fimmu og láta hann svo kvitta. Í síðdegiskaffinu voru dregnir út vinningar úr útfylltum spjöldum.
Þjónandi leiðsögn dagarnir 2025 heppnuðust mjög vel. Tilgangurinn var bæði að rifja upp og fjalla um Þjónandi leiðsögn, hugmyndir á bakvið hana og aðferðirnar sem við notum. Ekki síður að brjóta upp hversdagsleikann og gera eitthvað skemmtilegt saman, eitthvað sem tengir okkur og sameinar.
Þjónandi leiðsögn þemadagar 2024 og mentorfræðsla hjá félaginu
Í apríl 2024 voru þjónandi leiðsögn þemadagar haldnir öðru sinni á starfsstöðum Áss styrktarfélags. Dagarnir eru notaðir til þess að minna á aðferðir og hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, en Ás styrktarfélag hefur notast við þjónandi leiðsögn síðan 2017.
Á þemadögunum voru afjhjúpuð ný veggspjöld með verkfærum þjónandi leiðsagnar í Ási vinnustofu, Bjarkarási og Lækjarási. Við ræddum sérstaklega eina af grunnstoðum hugmyndafræðinnar, þátttöku. Það var sett upp þátttökutré þar sem starfsfólk og leiðbeinendur gátu hengt eitthvað fallegt. Það er mikilvægt að vera þátttakandi á tímum þegar einmannakend og einangrun eru á meðal helstu meina samfélagsins.
Á þjónandi leiðsögn dögunum voru bæði þjónandi leiðsögn krossgáta og þjónandi leiðsögn bingó og skipulagður var barnamyndaleikur. Allir sem vildi komu með mynd af sér frá æsku og svo var safnast saman og giskað á hver var á myndunum og sá fékk tækifæri til þess að segja frá þeim tíma sem myndin tekin. Eitt af því sem við gerum með þjónandi leiðsögn er að skapa nýjar minningar og hugmyndin með barnamyndaleiknum var að nota gamlar minningar til þess að búa til nýjar.
Þjónandi leiðsögn dagarnir tókust mjög vel. Þeir einkenndust af gleði og samveru. Þemadagarnir voru skipulagðir af þjónandi leiðsögn mentorahóp Áss styrktarfélags. Nú er í gangi átak til þess að fjölga mentorum hjá félaginu, en nýtt mentoranámskeið hefst í apríl 2024.
Trausti Júlíusson, apríl 2024.
Bæklingur um þjónandi leiðsögn útgefinn af Ási styrktarfélagi á Þjónandi leiðsögn þemadögum 2023.
Þjónandi leiðsögn hjá Ási styrktarfélagi
Þjónandi leiðsögn (e. gentle teaching) hefur á síðustu árum náð mikilli útbreiðslu á Íslandi. Hún var fyrst tekin upp hérlendis á Akureyri snemma á tíunda áratug síðustu aldar og var lengi vel nánast eingöngu notuð á ákveðnum búsetuúrræðum þar í bæ.
Síðustu ár hefur áhugi fyrir henni hinsvegar aukist til muna og nú er svo komið að þjónandi leiðsögn hefur verið formlega innleidd í allar starfsstöðvar í fötlunar- og öldrunargeirunum á Akureyri og innleiðing stendur yfir mjög víða annarsstaðar á landinu t.d. hjá Reykjavíkurborg, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Árborg, Reykjanesbæ, Egilsstöðum, Ási styrktarfélagi og eflaust víðar.
Áhuginn vaknaði á fræðsludegi.
Ás styrktarfélag tók ákvörðun um að innleiða þjónandi leiðsögn á allar sínar starfsstöðvar snemma árs 2017.
Forsaga þess er sú að Kristinn Már Torfason og Arne Friðrik Karlsson höfðu komið með kynningu á þjónandi leiðsögn á sameiginlegan starfs- og fræðsludag fyrir starfsfólk haustið 2014. Í framhaldinu voru tveir starfsmenn hjá félaginu, Hidda Pálsdóttir og Trausti Júlíusson, sendir til Akureyrar vorið 2015 í mentoraþjálfun undir stjórn Kristins Más og Michaels Vincent.
Upp úr áramótum 2017 lagði Trausti fram þá tilllögu við framkvæmdarráð að innleiða þjónandi leiðsögn. Sú tilllaga var studd af mannauðsstjóra, Ernu Einarsdóttur og ýmsum öðrum stjórnendum í Ási. Tillagan var samþykkt í framkvæmdaráði og í framhaldinu af stjórn félagsins. Innleiðing hófst svo formlega þann 24. apríl 2017 þegar fyrsti hópur starfsmanna mætti í innleiðingarfræðslu. Trausti og Mike Vincent sáu um fyrsta innleiðingardaginn. Trausti og Hidda hafa eftir það haldið utan um og skipulagt innleiðingu á þjónandi leiðsögn hjá Ási og séð um fræðslu svo sem fyrir nýliða og mentoraþjálfun.
Af hverju þjónandi leiðsögn?
Ástæðan fyrir innleiðingu þjónandi leiðsagnar hjá félaginu er sú að stjórnendum leist vel á að nota hugmyndafræði sem miðar að því að bæta líf og líðan starfsmanna, bæði fatlaðra og ófatlaðra. Þjónandi leiðsögn byggir á kærleiksríkri nálgun. Hún snýst um að mynda tengsl, skapa öryggi og bæta samskipti. Reynslan af því að nota þjónandi leiðsögn, t.d. á Akureyri, er mjög góð. Þar hefur hún hefur bætt líðan fólks, fækkað atvikum sem tengjast erfiðri hegðun og aukið sjálfstæði fólks og hjálpað því að verða virkari þátttakendur í samfélaginu.
Hvað er þjónandi leiðsögn ?
Eins og áður segir byggir þjónandi leiðsögn á kærleiksríkri nálgun. Þeir sem starfa samkvæmt þjónandi leiðsögn beita ekki hörku, þeir nota ekki umbun og refsingu heldur leggja áherslu á að byggja upp samband við einstaklingana sem þeir eru að vinna fyrir með því að styðja þá og hvetja. Þeir sýna alltaf nærgætni og vinsemd. Ef einhver sýnir slæma hegðun þá er honum ekki refsað, hann er ekki skammaður og honum er ekki hótað. Þeir sem vinna samkvæmt þjónandi leiðsögn mæta alltaf slæmu með góðu.
Þjónandi leiðsögn leggur mikla áherslu á að byggja upp traust hjá þeim einstaklingum sem unnið er með. Til að það traust náist þarf að mynda alvöru tengsl við viðkomandi. Honum er gert það ljóst að umhyggjan fyrir honum sé engum skilyrðum háð. Hann á það ekki á hættu að hún hverfi ef að hann segir eða gerir eitthvað rangt. Hann fær umhyggjuna strax. Það er enginn reynslutími. Þjónandi leiðsögn notast við ákveðin verkfæri í daglegu starfi og snýst um nálgun í samskiptum, en hún fylgir líka ákveðinni grunnhugsun. Þess vegna er talað um hana bæði sem aðferðarfræði og hugmyndafræði.
Mikið starf framundan.
Starfsfólk frá Ási hefur verið duglegt að sækja árlega ráðstefnu Gentle Teaching International, en sem dæmi má nefna að haustið 2019 voru þátttakendur frá Ási á ráðstefnunni í Gent í Belgíu á þriðja tuginn. Hidda og Trausti kynntu stöðu innleiðingar hjá Ási styrktarfélagi á GTI ráðstefnunni í Vancouver árið 2017.
Allir nýjir starfsmenn fá fræðslu um þjónandi leiðsögn sem hluta af nýliðafræðslu. Auk þess hafa verið haldnir fyrirlestrar um þjónandi leiðsögn á starfsmannafundum, þar á meðal fengu fatlaðir starfsmenn kynningu á auðskildu máli. Haustið 2019 höfðu 100 manns fengið þriggja daga innleiðingarfræðslu hjá félaginu. Fyrsti mentorahópurinn (18 manns) útskrifast vorið 2020.
Þjónandi leiðsögn hefur þegar bætt líðan og starfsumhverfi margra þeirra sem eru í þjónustu hjá Ási styrktarfélagi, en betur má ef duga skal. Framundan er áframhaldandi fræðslustarf og er markmiðið að allir fastir starfsmenn fái innleiðingarfræðslu og að menntaðir verði einn til tveir mentorar til að starfa á hverri starfsstöð. Mentorarnir munu taka að sér hluta af þeirri fræðslu og hvatningu sem er nauðsynleg til þess að halda starfsfólki meðvituðu um að vinna samkvæmt þjónandi leiðsögn.
Trausti Júlíusson, apríl 2020.