Búsetu- og heimilisstefna 2015 – 2025
Að vera í fararbroddi hvað varðar útfærslu húsnæðis og aðstoð á heimilum. Félagið einsetur sér að vinna að þróunarstarfi og leita leiða til aukinna lífsgæða í samstarfi við íbúa og aðstandendur þeirra. Mikilvægt er að fólk hafi úr fjölbreyttu húsnæði að velja. Lögð er áhersla á að virða rétt einstaklingsins til sjálfstæðis eins og kostur er og virkrar þátttöku í samfélaginu.
Í því felst meðal annars:
- Að hafa fjölbreytt húsnæði og aðstoð í boði.
- Að fólk geti valið sér húsnæði í samræmi við óskir sínar og þarfir.
- Að fólk hafi val um hvar það býr.
- Að fólk geti elst með reisn heima hjá sér.
- Að félagið haldi áfram, í samvinnu við íbúa og aðstandendur, að vinna að nýjungum í húsnæðismálum, horfi til framtíðar og nýrra möguleika varðandi tæknilausnir.
- Að auka áhrif íbúa á val starfsmanna og útfærslu vinnuferla.
Samþykkt af stjórn 12.03.2015