Mikilvægt er að lesa þessa starfshætti vel.
Inngangur
- Allir þurfa að vanda sig í vinnunni.
- Mikilvægt er að hugsa um það.
- Góðir starfshættir aðstoða okkur við að vinna með öðru fólki.
Hvers vegna góðir starfshættir?
- Góðir starfshættir gera okkur að betri starfsmönnum.
- Góðir starfshættir gera okkur að betri starfsfélögum.
- Góðir starfshættir eru leiðbeinandi reglur í vinnunni.
Góðir starfshættir eru:
- Að sýna öllu fólki virðingu.
- Að vinna verkin sín vel.
- Að tala ekki um einkamál annarra.
- Að vinna með öðru fólki.
- Að vera jákvæð og góð fyrirmynd.
- Að fara á námskeið um vinnuna.
Góðir starfshættir geta verið fleiri en hér koma fram