Skip to main content
search
0

Þjónustusamningur um rekstur Kirkjubrautar á Seltjarnarnesi undirritaður

Þann 1. mars 2023 var skrifað undir þjónustusamning milli Seltjarnarnesbæjar og Áss styrktarfélags um rekstur nýs búsetukjarna að Kirkjubraut 20 á Seltjarnarnesi.

Seltjarnarnesbær á húsnæðið en Ás styrktarfélag sér um rekstur þjónustunar við þá 6 íbúa sem munu búa þar.

Húsið er glæsilegt og það er ósk okkar að íbúum líði vel í því.

Við óskum öllum aðilum til hamingju með þetta stóra skref.

Á myndinni undirrita og handsala Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarness og Þóra framkvæmdarstjóri Áss samninginn.

Eldri fréttir frá félaginu