Dagana 14.-16. október voru haldnir dagar þjónandi leiðsagnar. Dagarnir eru notaðir til þess að minna á aðferðir og hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar en Ás styrktarfélag hefur notast við þjónandi leiðsögn síðan 2017. Hugmyndafræðin gengur út á að öll samskipti eigi að snúast um virðingu og traust og að sýna fólki alltaf skilyrðislausa umhyggju. Við beitum aldrei hörku eða harðræði og tölum ekki niður til fólks. Við leggjum áherslu á að mynda tengsl og gera hlutina saman.
Í ár var sérstök áhersla lögð á grunnstoðir þjónandi leiðsagnar, „Að fá umhyggju og kærleika og að veita umhyggju og kærleika“. Þessi áhersla endurspeglaðist í fjölbreyttri dagskrá fyrir starfsfólk.
Á Vinnu- og virknistöðum félagsins var sérstök hátíðarútgáfa af Tökum lagið virknihópnum. Komið var saman í matsalnum í Ögurhvarfi og Bjarkarási og sungið saman. Tekin voru meðal annars lög um vináttuna og að sjálfsögðu var vel tekið undir á báðum stöðum.
Gullkorn þjónandi leiðsagnar voru afhent en þau eru í formi spilastokks sem var samvinnuverkefni hjá öllu félaginu. Allar starfstöðvar og öll heimili félagsins tóku þátt í hönnun gullkornanna með því að senda inn hugmyndir að gullkornum, teikna myndir og sauma poka utan um spilin.
Á föstudeginum var svo hið sívinsæla Þjónandi leiðsögn bingó. Það gengur út á að fylla út reiti á bingóspjaldi sem tengjast þjónandi leiðsögn. Í ár þurfti meðal annars að sýna kærleika og hlýju gagnvart öðrum, hrósa og dansa með öðrum.
Samhliða dagskránni gafst starfsfólki kostur á að skoða sýningu á innsendum verkum fyrir Gullkorn þjónandi leiðsagnar. Sýningin vakti athygli og minnti á mikilvægi þeirra gilda sem þjónandi leiðsögn byggir á.
Dagarnir heppnuðust einstaklega vel og gáfu starfsfólki tækifæri til að staldra við, rifja upp grunnstoðir þjónandi leiðsagnar og fagna þeim jákvæðu áhrifum sem hugmyndafræðin hefur á daglegt starf og samskipti innan félagsins.