Skip to main content
search
0

Project search hjá Ási styrktarfélagi

Project SEARCH á rætur að rekja í Cincinnati, Ohio í Bandaríkjunum. Upphafsmenn þess eru Erin Riehle og Susie Rutkowski, en það var árið 1996 sem Erin hafði samband við Susie til að kanna hvort hún vissi af fötluðu fólki sem hefði áhuga á að vinna á Cincinnati Childrens medical center. Í framhaldi af því þróuðu þær starfsnám sem miðar að því að greiða götur fatlaðs fólks að atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði. Project SEARCH er ætlað að ögra viðhorfum til vinnuframlags og litlum væntingum til fatlaðs fólks á atvinnumarkaði sem hafa verið lífsseig hingað til. Lögð er áhersla á að skapa mjög jákvæða mynd af fötluðum starfsmönnum sem er áhrifaríkasta leiðin til að breyta viðhorfum til hins betra.

Project SEARCH er 9 mánaða starfsnám sem fer fram á vinnustað sem leggur til húsnæði, verkefni, tengilið og fleira sem þarf til. Kennslan fer fram í „skólastofu“ og í 3 mismunandi deildum fyrirtækis þar sem kennd eru félagsleg færni og vinnufærni sem nýtist nemendum í vegferð sinni út á almennan vinnumarkað.

Áherslur námsins eru á að einstaklingurinn fái vinnu á almennum vinnumarkaði, sé ráðinn beint af fyrirtækinu og fái laun samkvæmt kjarasamningum. Ekki er gert ráð fyrir að fyrirtæki sem ráða til sín fólk sem lýkur náminu nýti sér vinnusamninga, enda séu þeir ekki hluti af eðlilegu ráðningaferli né til þess fallnir að fólk sé metið að verðleikum. Þeir bjóði auk þess upp á fyrirfram efasemdir um að viðkomandi ráði við starfið.

Heimsókn Erin og Susie

Vikuna 4.-8. apríl komu þær Erin Riehle og Susie Rutkowski til okkar. Tilgangur heimsóknarinnar var að aðstoða okkur við að innleiða Project SEARCH á Íslandi. Meðan á heimsókn þeirra stóð voru haldnar kynningar fyrir mögulega samstarfsaðila okkar varðandi verkefnið og einnig unnu þær að undirbúningi verkefnisins með starfsmönnum þess, Valgerði og Petru og framkvæmdastjóranum, Þóru.

Það er ekki annað hægt að segja um heimsóknina en að hún hafi gagnast vel og að þær stöllur hafi hrifist af landi og þjóð. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við þær. Með fréttinni má sjá myndir af vinnufundum Valgerðar, Petru, Susie og Erin.