Breytingar voru gerðar í byrjun febrúar, þegar Vinna og virkni var sameinað undir einn forstöðumann.
Heba Bogadóttir tók við og er nú forstöðumaður yfir allri Vinnu og virkni hjá Ási styrktarfélagi.
Hún þekkir vel til og hefur fylgt þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þjónustu Vinnu og virkni frá árinu 2012. Bjóðum við hana velkomna til starfa í þessu viðamikla verkefni og vitum að því er vel fyrir komið í hennar höndum og samstarfsfólk sem einnig er reynslu mikið og þekkir vel til.
Með henni eru tveir deildarstjórar: Halldóra Kolka Ísberg og Brynjar Hans Lúðvíksson og svæðisstjórar eru fimm. Þrír í Ögurhvarfi og tveir í Stjörnugróf auk hópstjóra með sértæk verkefni.
Auk þess er Svanhvít Sigurðardóttir með verkefna stjórn. Hún sér um upplýsingagjöf til sveitafélaga um ráðstöfun og virkni rýma ásamt því að sitja ársfundi og stjórna inntökum.
