Stjórn félagsins bauð starfsfólki Vinnu og virkni og íbúum á sumarhátíð fimmtudaginn 10.ágúst.
Veðrið var með besta móti og kjöraðstæður til útileikja. Pylsur voru grillaðar ofan í skarann og allir fengu ís frá Skúbb ísgerðinni.
Dj. Fusion Groove hitaði upp mannskapinn fyrir Hreim Örn Harðarsson sem lék við hvern sinn fingur.
Frábær dagur eins og sjá má á myndum.