Starfsdagar eru á öllum starfsstöðvum vinnu og virkni dagana 22. til 24. apríl og er því lokað í Ási vinnustofu Ögurhvarfi 6 og Bjarkarási/Lækjarási Stjörnugróf 7-9 þá daga. Opnað verður að nýju mánudaginn 27. apríl.
Starfsdagana mun starfsfólk Vinnu og virkni nýta sér til að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í vinnu og virkni bæði hérlendis sem og erlendis en hópar eru meðal annars á leið til Vilnius í Litháen, Berlínar í Þýskalandi og Amsterdam í Hollandi.