Skip to main content
search
0

 

Vikuna 7.-11. september var haldin Listavika í Stjörnugróf þar sem listrænir hæfileikar fatlaðra starfsmanna fengu sannarlega að njóta sín. Markmið vikunnar var að draga fram fjölbreytta sköpunargáfu þeirra og setja upp sameiginlega listasýningu. Mörg þeirra hafa lengi stundað myndlist af miklum áhuga og tekið þátt í List án landamæra, svo löngu var orðið tímabært að gefa verkunum sameiginlegt sýningarrými.

Áhugi á sýningunni var mikill og tóku allir vel í að taka þátt. Safnast var saman í matsal þar sem meðal annars voru gerðar sjálfsmyndir og unnið að stórum listaverkum á dúkum.

Við gerð verkanna var notast við alls kyns efnivið, meðal annars plastflöskur, paprikur, kínakál, eyrnapinna og kartöflur. Efniviðurinn var síðan notaður til að stimpla með akrýlmálningu í fjölbreyttum litum á dúkana.Dúkarnir prýða nú sitthvort húsið, Lækjarás og Bjarkarás.

Á fimmtudeginum var opið hús í bæði Lækjarási og Bjarkarási þar sem gestum var boðið upp á kaffi og kleinur. Þar gafst tækifæri til að skoða afrakstur vikunnar, fagna listafólkinu okkar og njóta skemmtilegrar samveru.

Við hvetjum öll sem eiga leið um Stjörnugrófina til að kíkja við og skoða sýninguna. Listaverkin og dúkarnir verða til sýnis fram yfir miðjan október áður en undirbúningur fyrir næsta verkefni, hrekkjavökuna, hefst.