Skip to main content
search
0

Laugardagsopnun í versluninni Ásum næstu helgi

Fréttamynd - IMG 20211207 134015

Þá er komið að þriðju og seinustu opnun á laugardeginum næsta (11.desember) á milli kl 12.00-16.00 í Versluninni Ásum (í Ögurhvarfi 6). 

 

Hér fyrir neðan má sjá úrval af þeim vörum sem verða til sölu. Eftir sem áður er opið alla virka daga í versluninni frá kl 09.00-15.30, ef þessar helgaropnanir henta ekki. 

 

Við viljum benda á Facebook síðuna okkar og jólaleikinn þar sem þar er í gangi fram til 15.desember.

 

Við pössum upp á sóttvarnir og fjöldatakmarkanir og við minnum á að það er grímuskylda hjá okkur.

 

Hlökkum til að sjá ykkur og minnum á að með því að versla vörur frá Ási tryggið þið að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.