Skip to main content
search
0

Kynningarfundur á Project SEARCH

Þann 27. mars síðastliðinn var haldin kynning á Project SEARCH fyrir útskriftarnema framhaldsskóla. Ágætis mæting var á kynninguna og fólk var áhugasamt um verkefnið.

Núverandi starfsnemar stóðu sig frábærlega við kynningu verkefnisins. Þau fjölluðu um hvaða verkefnum þau hafa sinnt í sínu starfsnámi og hvernig þeim hefur gengið. Þau svöruðu spurningum vel og skilmerkilega.

Umsóknarfrestur fyrir næsta vetur er til 20. apríl, við hvetjum áhugasama um að setja sig í samband við þá sem halda utan um verkefnið í gegnum netfangið ps@styrktarfelag.is ef það vakna spurningar.

Umsóknareyðublað er hægt að finna hér.

Eldri fréttir frá félaginu