Skip to main content
search
0

Kynningafundur fyrir félagasamtök um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hjá Ási styrktarfélagi

Fréttamynd - Ollheimsmarkmid

Miðvikudaginn 13.febrúar verður haldinn kynningafundur fyrir félagasamtök um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, í Ögurhvarfi 6 milli 16.30-18.00

 

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru 17 skýr markmið í þágu mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar. Öll lönd og allir haghafar munu, í gegnum samstarfsverkefni, hrinda þessum markmiðum í framkvæmd.

 

Á þessum fundi verður kynnt hvernig almannaheillafélög og önnur félagasamtök geta lagt sitt af mörkum og fléttað heimsmarkmiðin inn í daglega starfsemi sína.

 

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

 

Skráning er móttekin hér