Jólamarkaður Áss styrktarfélags var haldinn í Ögurhvarfi 6 síðastliðinn laugardag og var dagurinn einstaklega ánægjulegur.
Á markaðnum var boðið upp á fjölbreytt úrval af vörum frá Ási vinnustofu, Lækjarási og Gróðurhúsinu.
Við viljum færa öllum sem lögðu leið sína til okkar innilegar þakkir fyrir komuna og stuðninginn. Með því að versla á jólamarkaðnum takið þið þátt í að skapa fjölbreytt og gefandi verkefni fyrir fólk með fötlun.
Fyrir þau sem ekki komust á jólamarkaðinn er enn nóg af tækifærum til að líta við!
Verslunin okkar í Ögurhvarfi 6 er opin alla virka daga frá kl. 9:00 til 15:30. Við verðum einnig í Jólaþorpinu í Hafnarfirði alla næstu helgi, 27.–29. nóvember, þar sem hægt verður að skoða og versla fallegar vörur og njóta sannkallaðrar jólastemningar.
Við erum þakklát fyrir frábærar viðtökur og hlökkum til að sjá ykkur aftur!
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessum yndislega degi.