08.01.2024
Þriðjudaginn 09.janúar kl 21.20 mun heimildamyndin Project SEARCH: Allir með vera sýnd á RÚV.
Heimildamyndin gefur góða mynd af verkefninu sem miðar að því að styðja fatlað fólk til atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði.
Verkefnið gengur út á sambland af fræðslu og starfsþjálfun yfir 9 mánaða tímabil. Markmiðið er að eftir að náminu lýkur fái þátttakendur vinnu á almennum vinnumarkaði.
Við hvetjum alla til að horfa á Project SEARCH: Allir með