Skip to main content
search
0

Fréttir úr gróðurhúsinu

Nú er ræktunin í gróðurhúsinu komin vel á veg og allt í blóma. Fyrsta fullþroskaða agúrkan var snædd með viðhöfn eins og vanalega þann 7. apríl síðastliðinn.

Fyrsta uppskeran af tómötum fór í sölu þann 12. maí en í gróðurhúsinu okkar eru ræktaðir, kirsuberjatómatar og plómutómatar.

Á vormarkaðinum þann 5.júní verður meðal annars hægt að kaupa tómata, agúrkur, graslauk, basilíku og paprikur.

Hér má sjá myndir af  starfsmönnum við vinnu og uppskeru vorsins.

Eldri fréttir frá félaginu