Hér eru fleiri myndir af vörum sem sem verða til sölu á POP-up markaði í Ögurhvarfi fimmtudaginn 01.júní frá milli kl 13.00-15.30.
Í boði verða vörur frá gróðurhúsinu, Völundi (Stjörnugróf), Saumastofunni, Textíl, Smiðjunni, Kertagerðinni og Smíkó (Ási vinnustofu).
Allir eru velkomnir. Með því að eiga viðskipti á markaðinum stuðlið þið að því að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.