Skip to main content
search
0

Miðvikudaginn 25. mars var aðalfundur Áss Styrktarfélags haldinn.

Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Kosning fór fram í stjórn, varastjórn og uppstillingarnefnd, sem eru óbreyttar áfram. Breytingar urðu á skoðunarmönnum, Sigurður Þór gaf ekki kost á sér en Þórhildur Garðarsdóttir kemur í hans stað. Upplýsingar um stjórnarfólk og hlutverk má sjá hér.

Þóra Þórisdóttir fráfarandi forstöðumaður á Háteigsvegi fékk viðurkenningu fyrir 25 ára starfsaldur hjá félaginu.

Viljinn í verki er viðurkenning sem stjórn Áss styrktafélags veitir fyrirtæki eða einstaklingi fyrir að gefa fötluðu fólki aukin tækifæri til almennrar þátttöku í samfélaginu. Í ár fékk Íslenska gámafélagið  viðurkenninguna fyrir að gefa starfsfólki með skerta starsfgetu tækifæri til að koma á almennan vinnumarkað. Þórður Ingþórsson, þroskaþjálfi í Ási vinnustofu, afhenti viðurkenninguna ásamt Hjalta Geir Guðmundssyni og Júlíus Pálssyni. Hjalti Geir og Júlíus eru báðir starfsmenn í Ási vinnustofu, sem fara þrisvar í viku í Íslenska gámafélagið.

Samþykkt var að félagsgjöld haldist  óbreytt milli ára, 5000 kr.

Hér má skrá sig í félagið í gegnum heimasíðu.