Ás styrktarfélag veitir fötluðu fólki fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu. Félagið hefur að geyma framsækinn starfsmannahóp og góðan starfsanda sem skilar sér í faglegu og áhugaverðu starfi. Hægt er að sækja um stöðurnar í gegnum heimasíðu félagsins hér.
Vakin er athygli á meðferð persónuupplýsinga með Persónuverndaryfirlýsing umsækjenda
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Fjölbreytt sumarstörf Laus til umsókna
Okkur vantar stuðningsfulltrúa í sumarstarf, bæði í búsetu þar sem um er að ræða vaktavinnu og í vinnu og virkni og þá er unnið í dagvinnu.
Við hjá Ási Styrktarfélagi erum með íbúðarkjarna víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og tvo vinnustaði fyrir fatlað fólk í Stjörnugróf og í Ögurhvarfi. Við veitum fólki með fötlun fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu og erum með framsækinn starfsmannahóp og góðan starfsanda sem skilar sér í faglegu og áhugaverðu starfi.
- Að veita fötluðum starfsmönnum/íbúum aðstoð eftir þörfum varðandi vinnu, umönnun, heimilislíf, félagslega þætti, sjálfshjálp og boðskipti.
- Starfsfólk þarf að setja sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður fatlaðs fólks.
- Starfsfólk þarf að búa yfir hæfni til að leiðbeina og aðstoða við persónulegar þarfir.
- Það er kostur að hafa reynslu af sambærilegum störfum.
- Jákvæðni, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum skiptir öllu máli.
- Til þess að geta aðstoðað fólk eftir þörfum þá þarf að vera til staðar íslenskukunnátta og líkamlegt og andlegt hreysti.
- Við ráðum eingöngu starfsfólk með hreint sakavottorð sem hefur náð 20 ára aldri.
Sótt er um störfin á starfasíðu Alfred, en þér er einnig velkomið að senda okkur almenna umsókn hér: Atvinnuumsókn