Framtíðarsýn félagsins 2015 – 2025 byggir á grunngildum þess, opinberri sýn á hvað þarf m.a. út frá Samningi Sameinuðu þjóðanna og þeim veruleika sem við lifum við í ljósi þess sem við berjumst fyrir og viljum sjá!
Þetta ætlum við að gera:
- Bjóða fjölbreytta og lausnarmiðaða þjónustu
- Hafa frumkvæði að nýjungum sem stuðla að þátttöku í samfélaginu
- Byggja upp aðstöðu eftir því sem þarf til aukinna lífsgæða og sjálfstæðis.
- Við erum í nærþjónustu við fólk
- Við setjum og vinnum eftir skilvirkum umhverfissjónarmiðum
- Við vinnum að innleiðingu á velferðartækni á breiðum grundvelli með það að markmiði að gera fólki kleift að eiga sjálfstætt líf
Samþykkt af stjórn 12.03.2015