Skip to main content
search
0

Þorrinn á næsta leiti

Fréttamynd - IMG 1724Við viljum byrja fyrstu frétt ársins á því að þakka kærlega fyrir viðtökurnar við lengdum opnunartíma í versluninni Ásum í Ögurhvarfi fyrir jólin.

Við höfum tekið jólin niður og erum tilbúin í þorrann eins og sjá má af myndum úr versluninni.

Bóndadagurinn er á föstudag og við hvetjum alla til að koma, versla vörur og gleðja bóndann (eða bara sjálfa/-n sig) með fallegri gjöf og styðja um leið við að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.