Skip to main content
search
0

Allan nóvember munum við í Ási Vinnustofu halda sýningu í Gallerí Listaseli í miðbæ Selfoss þar sem sýnd verða verk eftir nokkra af þeim listamönnum sem starfa hjá okkur. Verkin eru bæði einstaklingsverk og samvinnuverkefni og byggja á þeirri hugmyndafræði að enginn geti allt en allir geti eitthvað.

Með samvinnu ólíkra einstaklinga verða til fjölbreytt form og litir. Í sköpunarferlinu fá hæfileikar hvers og eins að njóta sín, þar sem framlag allra er metið að verðleikum.

Sýningin endurspeglar kraft samvinnunnar og þá sköpunargleði sem verður til þegar ólíkir styrkleikar mætast. Opnunarhátíð verður 7. nóvember kl 13:00-15:00