Skip to main content
search
0

Sýningin Smáborg, háborg – Reykjavík stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum og verður út október. Sýningin er haldin í tilefni af 240 ára afmæli Reykjavíkur árið 2026 og varpar ljósi á ásýnd borgarinnar og þróun hennar í gegnum tíðina.

Meðal listamanna á sýningunni er Ingi Hrafn Stefánsson, sem starfar hjá Ási vinnustofu. Ingi Hrafn hefur verið virkur þátttakandi í íslensku listalífi og tekið þátt í fjölmörgum sýningum á síðustu árum. Verk hans á sýningunni gefa áhugaverða sýn á borgina og tengsl fólks við umhverfi sitt.

Í þættinum Með okkar augum er skemmtilegt viðtal við Inga Hrafn Stefánsson þar sem hann segir frá listsköpun sinni og þátttöku í sýningunni. Viðtalið hefst á 1:10 mínútu.

 

Ingi Hrafn ásamt verkum sínum á sýningunni Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd