Magnús Már Guðmundsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Áss styrktarfélags af Þóru Þórarinsdóttur, sem gegnt hafði starfinu frá árinu 2001.
„Þóra lætur nú af störfum eftir farsælan feril og hefur átt stóran þátt í þróun og uppbyggingu félagsins á þeim rúmu tveimur áratugum sem hún hefur leitt það. Við hjá Ási styrktarfélagi þökkum Þóru fyrir framlag hennar og farsælt starf í gegnum árin,“ segir Þórður Höskuldsson, formaður stjórnar Áss styrktarfélags.
Starf framkvæmdastjóra Áss var auglýst í byrjun árs og var Magnús valinn úr hópi umsækjenda. Magnús starfaði síðast sem framkvæmdastjóri BSRB um sjö ára skeið og hefur auk þess gegnt fjölbreyttum störfum á starfsferli sínum, meðal annars sem borgar- og varaborgarfulltrúi, framhaldsskólakennari og blaðamaður. Þá hefur hann starfað með fötluðum börnum og ungmennum. „Magnús kemur til starfa með víðtæka reynslu sem mun nýtast félaginu vel við frekari uppbyggingu og þróun þess á næstu árum. Við bjóðum Magnús hjartanlega velkominn til starfa,“ segir Þórður.
„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Starfið leggst mjög vel í mig og það verður sérstaklega ánægjulegt að vinna með stjórn og öflugu starfsfólki að því að standa vörð um hagsmuni félagsins og byggja áfram á þeim góða grunni sem starfsemin stendur á,“ segir Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags.
Um Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag er almannaheillafélag sem var stofnað í mars 1958 af aðstandendum fatlaðs fólks til að gæta hagsmuna þess og veita þjónustu. Félagið rekur í dag sérhæfða vinnustaði fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu sem og tíu búsetukjarna á höfuðborgarsvæðinu. Ás styrktarfélag veitir um 300 manns þjónustu á sviði búsetu, dagþjónustu og vinnu. Hjá félaginu starfa um 450 manns í ríflega 300 stöðugildum
