Landinn 19.04.26
Landinn kom í heimsókn til Íslenska gámafélagsins, en fyrirtækið hefur verið í góðu samstarfi við Ás vinnustofu síðustu ár. Tveir starfsmenn frá Ási vinnustofu, þeir Hjalti Geir Guðmundsson og Júlíus Pálsson, mæta til vinnu þrisvar í viku hjá Íslenska gámafélaginu. Starf þeirra felst meðal annars í flokkun ákveðinna hráefna, þrifum og almennri hreinsun á lóð.
Við hjá Ási styrktarfélagi erum afar þakklát fyrir þetta góða og farsæla samstarf, sem gefur starfsmönnum Áss vinnustofu tækifæri til að taka þátt í störfum á almennum vinnumarkaði.
Hér má nálgast klippuna úr þættinum.
Íslenska gámafélagið fjallaði einnig um heimsóknina inn á heimasíðu sinni.

