19-23. maí var heilsuvika hjá starfsmönnum vinnu og virkni í Stjörnugróf.
Þá var hefðbundinn vinnudagur brotinn upp með heilsusamlegri hreyfingu en þar kenndi ýmissa grasa eins og myndirnar bera með sér.
Hægt var að byrja daginn á morgunleikfimi, fara í náttúru bingó, jóga og spila kubb. Einnig var boðið upp á ofur heilsudrykk úr Gróðurhúsinu sem vakti mikla lukku.
Vikan endaði svo með skemmtilegu Zumba partýi.