23.07.2024.
Núna hafa báðir starfsstaðir í Vinnu og virkni opnað aftur eftir sumarlokanir. Gróðurhúsið lokaði þó aldrei, arfinn fer aldrei í sumarfrí.
Hér má sjá svipmyndir frá hinni árlegu veiðiferð í Elliðaárnar þar sem starfsfólk úr Ási vinnustofu og Stjörnugróf lét reyna á veiðilukkuna. Þá má líka skoða myndir frá Setrinu þar sem sumarstarfsmaðurinn Birta Rós stýrði söngstund og að lokum nokkrar myndir af vettvangsferð í Hafnafjörð.