Skip to main content
search
0

Kvennaverkfall 24.október 2023

Boðað hefur verið til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október. Eru konur og kynsegin fólk hvatt til að leggja niður bæði launaða og ólaunaða vinnu.  Samstöðufundir verða haldnir um allt land og í Reykjavík verður fundur á Arnarhóli kl. 14:00.

Ás styrktarfélag mun ekki loka starfsstöðvum sínum. Starfsemi félagsins er þess eðlis að það er ekki hægt án þess að stofna öryggi og heilsu fólks í hættu. Forstöðumönnum er falið að manna störfin þar sem því verður við komið með því að fá karlkyns starfsfólk til að taka að sér þjónustuna og verkefnin. Þátttaka í þessum degi mun ekki hafa áhrif á laun eða kjör þeirra sem geta tekið þátt.

Í Vinnu og virkni verður innra starfi hagað þannig að einungis grunnþjónusta á heimastöðvum verður veitt, annað starf fellur niður.  Á það t.d. við um flesta virknihópa.

Eldri fréttir frá félaginu