Skip to main content
search
0

Sumarið er komið í Verslunina Ásar

Fréttamynd - IMG 2254

Í tilefni góða veðursins höfum við gert sumarhreingerningu og núna er Verslunin Ásar full af vörum framleiddum í Ási vinnustofu, Bjarkarás, Lækjarás og Smíkó. 

 

Með því að eiga viðskipti við verslunina Ásar tryggið þið að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu. Verið velkomin til okkar í Ögurhvarf 6 milli kl 09.00 og 15.30.

 

Handlitaður bómullarklútur – 3.500 kr 

Keramikhjarta – 500 kr

Keramikbolli – 2.000 kr

Myllupoki – 1.500 kr

Taska – 2.000-2.500 kr

Teppi – verð eftir lengd

Barnahandklæði – 1.500 kr

Kort – 300-500 kr

Snyrtitöskur – verð eftir stærð

Pottaleppar – 1000 kr

Stressbolti – 800 kr

Ofinn púði – 3000 kr.