Skip to main content
search
0

Fréttir úr gróðurhúsinu

Það iðar allt af lífi í gróðurhúsinu við Bjarkarás en hér má skoða myndir af tómötum, papriki, chilli og öðru sem fara fljótlega úr bökkum í beðin.

Gúrkurnar eru þegar komnar niður og byrjaðar að blómstra og vaxa. Við eigum von á því að fljótlega verði fyrstu gúrkurnar fullvaxnar.

Virknihópar í gróðurhúsinu fóru af stað um miðjan mars og eru í boði fram í miðjan október. Eins og sjá má á myndum þá er alltaf stemning í hópnum og eftirsóknin mikil að komast í vinnu í gróðurhúsinu.

Eldri fréttir frá félaginu