Í haust er boðið upp á nám í Opna háskólanum fyrir stjórnendur í þriðja geiranum. Námið tekur sérstaklega tillit til þarfa þriðja geirans og sérstöðu hans í stjórnun og rekstri. Slík félög og stofnanir eru oft upprunnin frá grasrót samfélagsins til að mæta sérstökum þörfum þeirra er félögin vinna fyrir. Þau vinna að almannaheill og er námið m. a. skipulagt af aðilum úr stjórn Almannaheilla.
Hér má smella til að lesa umfjöllun í Morgunblaðinu um þriðja geirann
Námið er 35 klst. langt, hefst þann 8. október 2019 og lýkur í desember sama ár. Það er hugsað sem hagnýtt nám fyrir stjórnendur í þriðja geiranum. Kennarar námskeiðsins eru með mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði.