Skip to main content
search
0

Sumarfréttir úr gróðurhúsinu

Eins og áður er nóg að gera í gróðurhúsinu okkar við Bjarkarás í Stjörnugróf. Þar fer fram lífræn ræktun (með vottun frá Túni) og undanfarið hefur uppskeran gefið vel af gúrkum og tómötum. Í ár ræktum við 3 tegundir af gúrkum; þær venjulegu, stuttar og snakk gúrkur. Við ræktum 2 tegundir af tómötum; kirsuberja- og  plómutómata.

Eins og fyrri ár þá ræktum við gulrófur, hnúðkál, hvítkál, vorlauk, blaðlauk, rauðrófur, gulrætur, grænkál, fennel og sellerí.

Meginstarfsemi gróðurhússins er jarðvegsvinna, sáning, umpottun, vökvun, pökkun og annað tengt ræktuninni. Einnig er ýmiskonar útivinna s.s umhirða og viðhald safnhauga, gróðursetning og umhirða útigrænmetis og uppskeruvinna. Starfsemi er í gróðurhúsinu 10 mánuði ársins, aðeins er lokað yfir háveturinn.

Undanfarin ár hefur félagið sent vikulega grænmeti til sölu í Fjarðarkaup, Hafnarfirði, Brauðhúsið og Melabúðina í Reykjavík.

Þetta samstarf hefur haldist sem er gott því þannig stuðla þessi fyrirtæki að því að fatlað fólk hafi næg verkefni í sinni vinnu.

Við minnum að lokum á haustmarkaðinn okkar sem er stefnt að öðru hvoru megin við mánaðarmótin ágúst/september.

Með fréttinni má sjá nokkrar myndir frá gróðurhúsinu, starfsmenn að störfum og myndir frá upphafi ræktunartímabilsins í byrjun sumars.