Skip to main content
search
0

Það er vika í jólamarkað

Við bendum á að í ár setjum við töluverðan kraft í veitingasöluna og hvetjum ykkur til að gefa ykkur tíma til að setjast niður og njóta veitinganna og kaupa sömuleiðis smákökur framleiddar hjá okkur.

Við minnum á að með því að versla vörur og veitingar á jólamarkaði Áss tryggið þið að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.

Allir velkomnir laugardaginn 30.nóvember milli 13.00 og 16.00 í Ögurhvarf 6.