Skip to main content
search
0

Fréttamynd - Kerti

Á nýju ári er svo mikill kraftur í starfseminni hjá okkur að við erum að klára kertalagerinn. Við hvetjum þá sem eiga kerti aflögu og vilja styðja okkur að koma með kertaafganga á svæði tvö eða á skrifstofuna.

 

Við afþökkum ilmkerti.

 

Á sama tíma gefst tækifæri til að kíkja í Verslunina Ásar og kaupa tuskur til að þrífa út rykið á nýju ári. 

 

Verðið er gott og allir velkomnir.

 

Andlistklútar 20 stk – 1000 kr

Borðtuskur 6 stk – 200 kr

Bleiur 6 stk – 1.550 kr

Gluggaklúta – 6 stk – 900 kr

Diskaþurrku – 1 stk – 490 kr

Bómullarhandklæði – 160×100 cm -4100 kr

Hárhandklæði – 2500 kr og

Barnahandklæði 3500 kr

 

Verslunin er opin frá kl 09.00-15.30 alla virka daga. Með því að eiga viðskipti við verslunina Ása tryggið þið að fólk með fötlun hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu. Þar eru seldar vörur framleiddar í Ási vinnustofu, Bjarkarási, Lækjarási og Smíkó.

 

Auðlesinn texti: 

 

Starfsmenn Áss hafa unnið mikið eftir áramót.

Svo mikið að öll kerti í kerta-gerðinni eru að verða búin.

Við biðjum þá sem vilja gefa okkur kerta-afganga að koma með þau á svæði 2. 

Um leið er hægt að kaupa hluti í búðinni. 

Ef fólk kaupir hluti í búðinni þá hjálpar það fólki með fötlun að fá fjöl-breytt verkefni í vinnunni.

Búðin er opin frá níu til hálf fjögur (09.00-15.30).