Skip to main content
search
0

Á dögunum var Auður Einarsdóttir, starfsmaður Áss vinnustofu, heiðruð fyrir langan og farsælan starfsferil hjá Ási styrktarfélagi, en hún hefur starfað hjá félaginu í 41 ár.

Auður hóf störf árið 1985, þegar Ás vinnustofa var til húsa í Brautarholti. Síðan þá hefur hún fylgt starfseminni í gegnum árin og býr yfir dýrmætri reynslu og þekkingu.

Auður hefur alla tíð verið mikil saumakona og starfar í dag á saumastofunni í Ögurhvarfi, þar sem hún nýtir hæfileika sína og reynslu.

Við þökkum Auði hjartanlega fyrir öll þessi ár hjá félaginu