Skip to main content
search
0

⚠️ Mikilvæg tilkynning vegna veðurviðvörunar á morgun; 26.3.2026 ⚠️

 

Kæra starfsfólk og aðstandendur,

Spáð er mjög slæmu veðri á morgun 26.3.2026 og verður appelsínugul veðurviðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 07:00 til 13:00.

Vegna þessa viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

  • Mat á aðstæðum: Við biðjum ykkur að meta hvort skynsamlegt er fyrir fólk að leggja af stað til vinnu á þeim tíma sem viðvaranir eru í gildi.
  • Akstursþjónusta: Búast má við truflunum á akstri og töfum á meðan veðrið er sem verst.
  • Starfsemi: Húsin okkar í Ögurhvarfi og Stjörnugróf verða opin.

Við hvetjum ykkur jafnframt til að fylgjast náið með tilkynningum í fjölmiðlum, Almannavörnum og nýjustu spám á vedur.is

Förum varlega og sýnum varkárni í fyrramálið.