Ás styrktarfélag tók þátt í tveimur verkefnum varðandi ungmennaskipti á vegum Landsskrifstofu ungs fólks í Evrópu (Youth in Europe exchange). Um var að ræða samstarfsverkefni milli félagsins og Associazone Italiana Persone Down (AIPD).
Félagið tók á móti 10 ítölskum ungmennum og fararstjórum þeirra hér á Íslandi og tveimur mánuðum seinna fóru íslenskir þátttakendur út til Pisa á Ítaliu en þá voru Ítalir í hlutverki gestgjafa.
Markmið með verkefninu var m.a.
- Að efla sjálfstæði ungs fólks með Downs heilkenni og gefa því tækifæri til að ferðast og kynnast öðru ungu fólki með Downs heilkenni í Evrópu.
- Að læra af reynslu hvers annars, kynnast aðstæðum og aðbúnaði í ólíkum löndum.
- Að þátttakendur auki við þekkingu sína á Evrópu og fái tækifæri til að kynnast nýju landi, menningu og þjóð.