Markmið jafnlaunastefnu er að allir starfsmenn njóti jafnra launa og kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. Jafnlaunastefna á sömuleiðis að tryggja að allir hafi jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína og krafta í starfi, óháð kyni.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunastefnu félagsins sem er ætlað að styðja við rekstur þess og tekur til allra starfsmanna.
Aðstoðarframkvæmdarstjóri er ábyrgur fyrir innleiðingu, viðhaldi og árlegu rýni jafnlaunakerfis félagsins.
Æðstu stjórnendur skuldbinda sig til að setja Ási jafnlaunamarkmið og vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfu jafnlaunastaðals ÍST 85:2012 á rýnifundum einu sinni á ári.
Launaákvarðanir eru byggðar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, gildandi kjarasamningum og öðrum þeim lögum og reglum sem tryggja að fyllsta jafnréttis sé gætt. Telji einstaklingur að ákvæði laga um jafnréttismál hafi brotin gagnvart sér getur hann leitað til kærunefndar jafnréttismála samkvæmt lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020.
Stuðst er við starfsmatskerfi sem metur á kerfisbundinn hátt þau störf sem starfsfólk sinnir. Starfslýsingar skulu vera til fyrir öll störf, þar sem fram koma meginþættir hvers starfs. Umfang og eðli starfs hefur áhrif á laun og ræðst af mörgum þáttum s.s. menntun, hæfni, reynslu og ábyrgð. Allar launaákvarðanir skulu vera málefnalegar, skjalfestar og rekjanlegar. Komi í ljós launamunur á jafnverðmætum störfum í innri eða ytri úttektum eða launagreiningum skal rýna niðurstöður úttekta og gera umbætur þegar þess er þörf, ef ekki er hægt að rökstyðja launamun á málefnanlegan hátt.
Telur starfsmaður sig ekki rétt launaraðaðan getur viðkomandi óskað eftir launasamtali hjá aðstoðarframkvæmdastjóra.
Jafnlaunastefna Áss er aðgengileg á heimasíðu félagsins og kynnt öllu starfsfólki
Samþykkt af stjórn 24.02.2022