Skip to main content
search
0

Áramótakveðjur og myndir frá Stjörnugróf

Fréttamynd - Jolabakstur Halli 2

Í síðustu frétt ársins birtum við ykkur myndir af jólalegu uppábroti frá hefðbundnum störfum í Stjörnugróf.

 

Myndirnar voru teknar í desember og eru meðal annars af jólapeysudeginum, jólakökubakstri, piparkökuskreytingum og ýmis konar jólalegum mat. Þessi mánuður var eins og flestir mánuðir ársins ólíkur því sem við eigum að venjast en það var gott að gera sér góðan dag innan síns sóttvarnarhóps. 

 

Með myndunum færir Ás styrktarfélag öllum óskir um gleðilegt ár með von í brjósti um bjartari tíma á nýju ári og þökkum samstöðuna á árinu.