Jólastemningin verður í hámarki í Hafnarfirði um helgina, 27. – 29. nóvember og Ás styrktarfélag tekur að sjálfsögðu þátt í gleðinni.
Við verðum í einu af fallegu hafnfirsku jólahúsunum í jólaþorpinu á Thorsplani. Þar verður til sölu fjölbreytt úrval af fallegum vörum frá okkur. Tilvalið tækifæri til að finna einstakar jólagjafir og styðja um leið við fjölbreytt verkefni fyrir fatlað fólk.
Opnunartími jólaþorpsins
- Föstudagur: kl. 17:00–20:00
- Laugardagur: kl. 13:00–20:00
- Sunnudagur: kl. 13:00–18:00
Jólagleði fyrir alla fjölskylduna!
Það verður líf og fjör í jólaþorpinu alla helgina og margt skemmtilegt á dagskrá. Páll Óskar mun meðal annars mæta í kvöld og syngja falleg jólalög.
Einnig er tilvalið að nýta ferðina til að rölta um Hellisgerði, skella sér á skauta á Hjartasvellinu eða kíkja í tívolíið við Venúsarhúsið að Strandgötu 11.
Hægt er að skoða dagskrá helgarinnar hér
Við hvetjum alla til að kíkja við hjá okkur í jólahúsinu og njóta aðventunnar með okkur!

