Skip to main content
search
0

Innilegar þakkir fyrir stuðninginn

Við hjá Ási styrktarfélagi viljum færa öllum þeim sem studdu áheitasöfnun okkar í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hjartans þakkir.

Öflugur hópur hlaupara tók þátt fyrir hönd félagsins og söfnuðust alls 205.000 krónur til styrktar Lyngási, leikskóladeild Ás styrktarfélags. Ágóðinn mun renna til kaupa á hringekju fyrir útileiksvæði Lyngáss, sem mun efla leik, hreyfingu og samveru barnanna og gera útiveruna enn ánægjulegri.

Við erum afar þakklát fyrir þann hlýhug, stuðning og velvilja sem verkefnið naut. Framlag hvers og eins skiptir máli og hjálpar okkur að bæta aðstöðu og skapa enn betra umhverfi fyrir börnin í Lyngási.

Kærar þakkir til allra þeirra sem hlupu fyrir okkar hönd, hétu á hlauparana og studdu verkefnið með einum eða öðrum hætti. Saman gerum við gæfumuninn.

 

Á meðfylgjandi myndum eru bræðurnir Þórður Höskuldsson, formaður Áss styrktarfélags og Jón Grétar Höskuldsson, starfsmaður Áss vinnustofu. Þeir hlupu saman fyrir hönd Ás styrktarfélags í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.