Nú stendur mikið til hjá okkur. Undanfarna mánuði höfum við unnið af krafti að undirbúningi spennandi listasýningar sem verður haldin í Gallery Listaseli á Selfossi allan nóvembermánuð. Þar munu starfsmenn Áss Vinnustofu fá tækifæri til að sýna verk sín og deila sköpunargleði sinni með gestum og gangandi.
Nánari upplýsingar um sýninguna og opnun hennar verða birtar þegar nær dregur.


