Skip to main content
search
0

Byggingaleyfi fyrir nýtt gróðurhús að Stjörnugróf 9 er nú í höfn. Um er að ræða langþráðan áfanga, enda núverandi gróðurhús orðið barn síns tíma eftir áratuga þjónustu.
Næsta skref er að afla framkvæmdaleyfis svo hægt verði að hefja undirbúning lóðarinnar og leggja grunn að byggingu nýs gróðurhúss næsta vor.

Núverandi gróðurhús hefur verið mikilvægur hluti starfseminnar í yfir þrjá áratugi. Þar fer fram lífræn ræktun með vottun frá Vottunarstofunni Túni og hefur starfsemin verið í stöðugri þróun frá því gróðurhúsið var reist árið 1991 og tekið í notkun árið 1993. Þar er lögð áhersla á að skapa fjölbreytt og aðlagað vinnuumhverfi við ræktun grænmetis og matjurta ásamt ýmiss konar útivinnu tengdri ræktun og umhirðu.

Nýtt gróðurhús mun styrkja starfsemina enn frekar og skapa aukin tækifæri til þróunar og fjölbreytni í þjónustu félagsins. Byggingaleyfið markar því mikilvægan áfanga á þeirri vegferð.