Þann 9. september var tekin fyrsta skóflustunga að nýju gróðurhúsi Áss styrktarfélags í Stjörnugróf. Um er að ræða mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfseminnar sem mun skapa ný tækifæri til vinnu, þátttöku og starfsþjálfunar fyrir starfsfólk með skerta starfsgetu.
Skóflustungan markar upphaf nýs kafla í sögu gróðurhúsastarfsemi félagsins, en nú eru liðin um 30 ár frá því að gróðurhúsið við Bjarkarás var reist. Það hefur verið starfrækt frá árinu 1993 og þar hefur lífræn ræktun verið stunduð frá árinu 1996 með vottun frá vottunarstofunni Túni. Bygging þess markaði tímamót á sínum tíma þar sem til urðu ný og fjölbreytt verkefni fyrir fatlað starfsfólk og starfsemin hefur síðan þróast og vaxið í takt við þarfir samfélagsins.
Í ávarpi við athöfnina rifjaði Heba Bogadóttir, forstöðumaður í vinnu og virkni hjá Ási styrktarfélagi, upp mikilvægi gróðurhúsastarfseminnar fyrir Ás styrktarfélag og þá fjölbreyttu atvinnu- og þjálfunarmöguleika sem hún hefur skapað í gegnum árin. Hún benti jafnframt á að mikill undirbúningur lægi að baki verkefninu og að leiðin að þessum áfanga hefði tekið „ótal klukkustundir í vinnu, skipulagningu og hönnun.“
Nýtt gróðurhús fyrir framtíðina
Gamla gróðurhúsið hefur þjónað starfseminni afar vel en er nú komið til ára sinna. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir vinnu og nýjum tækifærum fyrir fatlað fólk aukist. Að sögn Hebu hefur Ás ávallt leitast við að vera í fararbroddi þegar kemur að því að skapa ný tækifæri og byggja upp aðstöðu sem stuðlar að auknum lífsgæðum, þátttöku og sjálfstæði.
Stefnt er að því að nýja gróðurhúsið rísi vorið 2027 eða snemmsumars. Við athöfnina sagði Heba: „Þetta gróðurhús sem mun rísa hér á vormánuðum 2027 mun skapa starfsmönnum Áss styrktarfélags skemmtilega og göfuga vinnu um ókomna tíð sem mun auðga líf þeirra og tækifæri.“
Þátttakendur í skóflustungunni voru:
- Auður Einarsdóttir, starfsmaður í gróðurhúsi
- Elínborg Sigurðardóttir, starfsmaður í gróðurhúsi
- Jón Grétar Höskuldsson, starfsmaður í gróðurhúsi
- Karl Þorsteinsson, meðstjórnandi Áss styrktarfélags
- Þóra Þórarinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags
- Þórður Höskuldsson, formaður Áss styrktarfélags
- Þórunn Klara Hjálmarsdóttir, starfsmaður í gróðurhúsi
Nýr kafli í starfsemi Áss
Með byggingu nýs gróðurhúss er Ás styrktarfélag að leggja grunn að áframhaldandi þróun starfseminnar og skapa aðstæður fyrir fjölbreytt og gefandi verkefni til framtíðar. Verkefnið er mikilvæg fjárfesting í aukinni þátttöku og tækifærum fatlaðs fólks á vinnumarkaði og markar upphaf spennandi vegferðar fyrir félagið og starfsemina í Stjörnugróf.
Við óskum öllum sem komið hafa að verkefninu innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.